WEBVTT

00:02.154 --> 00:08.287
Í þessu myndbandi verður farið
yfir fimm skref við gjöf CRYSVITA

00:09.090 --> 00:14.079
Vinsamlegast lestu fylgiseðilinn og
leiðbeiningar um notkun áður en þú notar lyfið.

00:15.000 --> 00:19.256
Aðeins gefa þér eða barninu inndælingu ef læknirinn hefur sagt
þér að gera það og þú hefur fengið þjálfun hjá heilbrigðisstarfsmanni.

00:20.000 --> 00:24.500
Læknirinn mun ávísa rétta skammtinum fyrir þig
og segja þér hversu mikið þú átt að gefa þér eða barninu.

00:24.977 --> 00:29.566
Þú eða barnið gætuð þurft fleiri en eitt hettuglas til að ná réttum skammti.

00:30.276 --> 00:37.009
Ef þú þarft fleiri en eina inndælingu,
skaltu endurtaka skref 2-5 og nota nýjan búnað og stungustað.

00:38.206 --> 00:42.727
Notaðu eingöngu sprautuna og nálarnar sem
læknirinn hefur afhent þér til að gefa inndælinguna.

00:43.450 --> 00:50.689
Þegar lyfið er gefið ungu barni, getur verið
gagnlegt að hafa annan aðila til staðar til að veita stuðning.

00:54.460 --> 00:57.315
SKREF 1: SAFNAÐU SAMAN OG SKOÐAÐU BÚNAÐINN

00:57.947 --> 01:00.633
Taktu nauðsynlegan fjölda hettuglasa úr ísskápnum.

01:01.291 --> 01:05.963
Athugaðu styrkleikann á merkimiða hvers hettuglass.

01:05.963 --> 01:10.516
Gakktu úr skugga um að þú hafir réttan fjölda hettuglasa miðað
við skammtinn í mg samkvæmt ráðleggingum heilbrigðisstarfsmannsins.

01:11.814 --> 01:14.839
Láttu hettuglösin hitna að stofuhita í 30 mínútur.

01:15.351 --> 01:23.398
Ekki má hita hettuglösin á annan hátt, svo sem með heitu vatni
eða í örbylgjuofni. Ekki má láta hettuglösin standa í beinu sólarljósi.

01:24.269 --> 01:31.394
Athugaðu fyrningardagsetninguna á miðanum á hettuglasinu
og skoðaðu vökvann í hettuglasinu, en gættu þess að hrista það ekki.

01:32.208 --> 01:39.239
Ekki má nota hettuglasið ef það er komið fram yfir fyrningardagsetningu
eða ef vökvinn er upplitaður, skýjaður eða inniheldur agnir.

01:40.076 --> 01:45.171
Vökvinn á að vera tær eða svolítið ópallýsandi, litlaus eða fölbrúngulur.

01:46.042 --> 01:49.280
Settu eftirfarandi hluti á hreinan, sléttan flöt:

01:49.812 --> 01:59.889
hettuglasið(glösin) með lyfinu, eina sprautu með stimpli,
eina stóra sprautunál til að draga lyfið upp, eina litla sprautunál
til inndælingar á lyfinu,

02:00.110 --> 02:07.967
sprittþurrkur, nálabox, plástur (ef þörf krefur) og grisjupúða eða bómull.

02:09.363 --> 02:14.049
Heilbrigðisstarfsmaðurinn mun útskýra notkun mismunandi nála.

02:14.777 --> 02:21.108
Stóra nálin er notuð til að draga CRYSVITA upp úr
hettuglasinu og litla nálin er notuð til inndælingar á CRYSVITA.

02:21.889 --> 02:25.460
Ekki má fjarlægja hettuna af nálunum fyrr en þú ert tilbúin(n) til að nota þær.

02:26.222 --> 02:32.388
Ekki má nota hluti sem vantar á stykki eða eru skemmdir á einhvern hátt.

02:33.614 --> 02:37.372
Þvoðu hendurnar vandlega með sápu og
vatni áður en þú heldur áfram í skref 2.

02:39.243 --> 02:43.485
SKREF 2. DRAGÐU UPP LYFIÐ OG UNDIRBÚÐU INNDÆLINGU

02:43.849 --> 02:48.187
Við sýnum nú skref 2, sem þarf að endurtaka fyrir hverja inndælingu

02:48.772 --> 02:51.531
Fjarlægðu fyrst lokið af hettuglasinu.

02:52.432 --> 02:56.240
Síðan skaltu hreinsa gúmmítappann
í hettuglasinu með sprittþurrku og láta þorna.

02:56.448 --> 03:01.964
Ekki snerta gúmmítappann eftir að þú hefur hreinsað hann.

03:03.194 --> 03:08.564
Taktu stóru nálina úr sæfðu umbúðunum
en ekki fjarlægja hettuna sem hylur nálina.

03:08.980 --> 03:16.898
Til að festa nálina við sprautuna skaltu halda í hlífðarhettu
stóru nálarinnar með annarri hendi og belg sprautunnar með hinni hendinni.

03:17.678 --> 03:19.829
Það fer eftir búnaðinum sem þú hefur fengið afhentan, hvort þú þurfir að

03:19.947 --> 03:28.824
þrýsta nálinni niður og snúa henni réttsælis til þess að festa hana á sprautuna þar til hún situr þétt eða þrýsta nálinni niður þar til hún er vel fest.

03:29.359 --> 03:34.312
Ekki snerta nálina sjálfa eða enda sprautunnar þar sem nálin er fest.

03:34.647 --> 03:43.100
Því næst skaltu halda í belg sprautunnar þannig að nálin
vísi upp og fjarlægja nálarhettuna með því að draga hana beint af.
Ekki henda nálarhettunni.

03:44.001 --> 03:48.952
Ekki snerta nálina eða láta nálina snerta
neina fleti þegar hettan hefur verið tekin af.

03:48.952 --> 03:54.882
Ekki nota sprautuna ef þú missir hana eftir
að hettan hefur verið fjarlægð eða ef nálin virðist skemmd.

03:55.714 --> 04:01.422
Heilbrigðisstarfsmaðurinn segir þér hversu
miklum vökva þú þarft að dæla inn og hvaða merkingu skal nota.

04:01.630 --> 04:03.630
Notaðu alltaf merkinguna sem samsvarar skammtinum þínum.

04:04.480 --> 04:09.670
Dragðu stimpil sprautunnar aftur á bak þar til endinn
á stimplinum er samsíða merkingunni sem samsvarar skammtinum þínum.

04:10.073 --> 04:12.073
Þetta fyllir sprautuna af lofti.

04:13.736 --> 04:19.860
Komdu hettuglasinu fyrir á sléttum fleti.
Stingdu stóru nálinni hægt í gegnum gúmmítappann og í hettuglasið.

04:20.328 --> 04:23.813
Ekki láta nálaroddinn snerta vökvann í hettuglasinu.

04:23.935 --> 04:31.160
Ef nálaroddurinn snertir vökvann,
skaltu toga hægt í nálina þar til hún snertir ekki lengur vökvann.

04:32.060 --> 04:37.235
Þrýstu stimplinum hægt inn í sprautuna
til að dæla lofti úr sprautunni inn í hettuglasið.

04:37.997 --> 04:41.412
Haltu nálinni í hettuglasinu og snúðu hettuglasinu á hvolf.

04:41.759 --> 04:49.228
Gakktu úr skugga um að oddur nálarinnar
sé neðst í vökvanum og dragðu stimpilinn hægt til baka

04:49.331 --> 04:53.090
þar til endinn á stimplinum er samsíða
merkingunni sem samsvarar skammtinum þínum.

04:53.388 --> 04:58.420
Haltu nálaroddinum alltaf í vökvanum.

04:58.957 --> 05:02.247
Eftir þetta skaltu athuga hvort loftbólur séu í vökvanum í sprautunni.

05:02.380 --> 05:07.614
Ef þú sérð loftbólur skaltu halda sprautunni
uppréttri meðan nálin er enn þá í hettuglasinu

05:07.614 --> 05:13.208
og smella fingri varlega á sprautubolinn til þess að hreyfa loftbólurnar.

05:13.910 --> 05:20.944
þegar loftbólurnar eru komnar efst í sprautuna,
skaltu þrýsta hægt á stimpilinn til að þrýsta loftbólunum út.

05:21.302 --> 05:24.769
Athugaðu aftur hvort skammturinn þinn samsvari merkingunni á sprautunni.

05:25.087 --> 05:30.000
Ef þörf krefur, skaltu draga upp meira af vökva þannig
að hann sé samsíða merkingunni sem samsvarar skammtinum þínum.

05:30.118 --> 05:34.689
Athugaðu aftur hvort þú sérð loftbólur og endurtaktu ferlið ef þörf krefur.

05:35.434 --> 05:40.560
Þegar engar loftbólur eru í sprautunni,
skaltu draga sprautuna og nálina beint niður úr hettuglasinu.

05:41.132 --> 05:43.954
Núna þarftu að fjarlægja stóru nálina af sprautunni.

05:44.387 --> 05:48.360
Til að gera það, skaltu taka hettuna
af stóru nálinni og leggja hana á sléttan flöt.

05:48.941 --> 05:56.334
Renndu stóru nálinni inn í hettuna með annarri hendi og
sópaðu henni upp þannig að hún hylji nálina án þess að nota hina hendina,
til að koma í veg fyrir meiðsli.

05:57.079 --> 06:00.853
Notaðu síðan hina hendina til að festa hettuna og smella henni á sinn stað.

06:01.286 --> 06:08.146
Það fer eftir búnaðinum sem þú notar hvort þú þurfir að snúa
stóru nálinni með hettunni rangsælis til að ná henni af sprautunni,

06:08.389 --> 06:14.087
eða toga stóru nálina með hettunni
beint af sprautunni og setja hana í nálabox.

06:15.281 --> 06:21.037
Taktu þá litlu nálina úr sæfðu umbúðunum
en ekki fjarlægja hettuna sem hylur nálina.

06:21.496 --> 06:29.132
Til að festa nálina við sprautuna skaltu halda í hlífðarhettu
litlu nálarinnar með annarri hendi og belg sprautunnar með hinni hendinni.

06:29.419 --> 06:36.994
Það fer eftir búnaðinum sem þú hefur fengið afhentan,
hvort þú þurfir að þrýsta nálinni niður og snúa henni réttsælis til að
festa hana á sprautuna þar til hún situr þétt,

06:36.994 --> 06:39.486
eða þrýsta nálinni niður þar til hún er vel fest.

06:39.757 --> 06:44.573
Ekki snerta nálina sjálfa eða enda sprautunnar þar sem nálin er fest.

06:47.155 --> 06:50.188
SKREF 3: UNDIRBÚÐU STUNGUSTAÐINN

06:50.577 --> 06:58.592
Við sýnum nú skref 3, sem felur í sér undirbúning stungustaðarins.
Þú þarft að endurtaka þetta skref fyrir hverja inndælingu.

06:59.338 --> 07:02.967
Inndælinguna þarf að gefa í fitulagið rétt undir húðinni.

07:03.249 --> 07:09.259
Ef þú gefur þér inndælinguna sjálf(ur),
eru magasvæðið eða efri hluti læranna hentug stungusvæði.

07:09.779 --> 07:18.825
Ef þú gefur einhverjum öðrum inndælinguna,
eru magasvæðið, efri hluti læranna, svæðin á utanverðum upphandlegg
og rasskinnar hentug stungusvæði.

07:19.361 --> 07:26.655
Ekki gefa inndælingu í svæði sem er aumt, rautt, marið eða
þar sem húðin er rofin, með slitum eða örum (þ.m.t. brunasárum).

07:27.000 --> 07:31.496
Ekki gefa inndælingu beint í
fæðingarblett eða í svæði umhverfis fæðingarblett.

07:31.888 --> 07:34.496
Ef þú ætlar að gefa fleiri en eina inndælingu,
skaltu nota nýjan stað fyrir hverja inndælingu.

07:34.739 --> 07:42.914
Hreinsaðu hvern stungustað með nýrri sprittþurrku og láttu húðina þorna.
Lyfið skal gefið í hreina, þurra húð.

07:44.078 --> 07:46.598
SKREF 4: INNDÆLING LYFSINS

07:47.175 --> 07:54.183
Við sýnum nú skref 4, sem felur í sér inndælinguna.
Mundu að endurtaka þetta fyrir hverja inndælingu.

07:55.000 --> 07:58.803
Fjarlægðu litlu nálarhettuna með því að draga hana beint af.

07:59.844 --> 08:06.020
Klemmdu húðina þétt á milli þumalsins
og fingranna til að mynda u.þ.b. 5 cm breitt svæði.

08:06.679 --> 08:15.736
Haltu sprautunni á milli þumalsins og vísifingurs ríkjandi handar.
Stingdu nálinni í húðina með 45° eða 90° horni.

08:16.168 --> 08:19.440
Heilbrigðisstarfsmaðurinn mun sýna þér hvort hornið þú eigir að nota.

08:20.000 --> 08:24.337
Notaðu snögga hreyfingu eins og þú sért að kasta
pílu til að stinga nálinni í samanklemmdu húðina.

08:24.414 --> 08:30.545
Ekki þrýsta á stimpilinn á meðan þú stingur nálinni í húðina.

08:31.082 --> 08:34.441
Ekki hreyfa nálina þegar henni hefur verið stungið í húðina.

08:34.700 --> 08:39.833
Haltu áfram að klípa í húðina og þrýstu stimplinum
hægt inn í sprautuna í allt að 30 sekúndur, þar til sprautan er tóm.

08:40.630 --> 08:47.669
Eftir að fullur skammtur hefur verið gefinn, skaltu ljúka
inndælingunni með því að draga sprautuna varlega beint út.

08:48.483 --> 08:54.925
Þú mátt nú losa takið á klemmdu húðinni og þrýsta á stungustaðinn með
bómullarhnoðra eða grisjupúða í nokkrar sekúndur til að stöðva blæðingu.

08:55.245 --> 09:00.163
Notaðu plástur ef þörf krefur en ekki nudda stungustaðinn.
Til að koma í veg fyrir meiðsli skaltu ekki setja hettuna aftur
á litlu nálina heldur setja nálina í nálaboxið.

09:00.301 --> 09:02.880
SKREF 5: EFTIR HVERJA INNDÆLINGU

09:03.614 --> 09:09.645
Settu notuðu nálarnar og hetturnar, sprauturnar og hettuglösin í nálaboxið.

09:09.907 --> 09:17.964
Ekki fleygja nálum, sprautum eða hettuglösum
með heimilissorpi og ekki geyma hettuglös með afgangslyfjum
til notkunar í framtíðinni eða afhenda þau öðrum.

09:18.726 --> 09:26.087
Ef þú gefur fleiri en eina inndælingu, skaltu endurtaka skref 
2‑5 fyrir hverja inndælingu og nota nýjan búnað fyrir hverja inndælingu.

09:27.161 --> 09:30.750
Takk fyrir að horfa á myndbandið – vonandi var það gagnlegt.

09:30.883 --> 09:37.290
Sjá nánari leiðbeiningar í CRYSVITA
fylgiseðlinum og notkunarleiðbeiningum.
